Hljómsveitin Vök gefur á morgun, föstudaginn 22. Maí, út sína aðra þröngskífu en hún nefnist Circles.
Sveitin er ný komin heim eftir vel heppnaða ferð á The Great Escape tónlistarhátíðina í Brighton þar sem sveitin hefur hlotið frábæra dóma fyrir tónleika sína. Framundan eru tónleikar í Hörpu þar sem sveitin hitar upp fyrir Ásgeir 16. Júní og þá spilar sveitin á Hróaskelduhátíðinni ásamt fleiri tónlistarhátíðum vítt og breytt um Evrópu.
Vök er skipuð Andra Má Enokssyni, Margrétri Rán Magnúsdóttur og Ólafi Alexander Ólafssyni.
Upptökur og upptökustjórn var í höndum hljómsveitarmeðlima en Biggi Veira, oftast kenndur við GusGus, sá um hljóðblöndun og hljómjöfnun.